Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

2 Próf eftir og síðan Stúdent!

16. maí 2007 klukkan 12:03

Sæl öll! Núna á ég bara eftir 2 próf, ensku og félagsfræði, og þá verð ég stúdent.. útskriftin hans Sigga mín er núna á laugardaginn en mín útskrift er laugardaginn á eftir, þannig að það er að koma að þessu hjá okkur ;) Síðan ég skrifaði síðast hef ég farið í munnlegt þýskupróf, skriflegt þýskupróf, sögupróf og munnlegt enskupróf. Það hefur bara gengið vel í öllum nema í söguprófinu það fór alveg í rúst þar sem ég fékk flog á laugardaginn og var að jafna mig á sunnudaginn og fór í prófið á mánudaginn þannig að ég náði lítið að læra, var slöpp og bara ekki ég sjálf..:( en ég vona bara það besta og vona að ég hafi náð því einhvern veginn... Það eru aðeins rúmar 6 vikur í að við fáum afhent íbúðina þannig að það er allt að gerast.. ég bíst síðan fastlega við því að ég byrji að vinna þriðjudaginn eftir útskriftina, ætla bara að klára skólann alveg áður en ég byrja að vinna svo að ég hrinji nú ekki niður á sviðinu í Háskólabíó :)

En sjáumst þar til næst! BÆBÆ :*

Afsakið biðina.....:)

08. maí 2007 klukkan 15:32
Sæl elsku vinir mínir og afsakið biðina sem er nú senn á enda....ég hef ekki bloggað núna í 5 mánuði sem ætti eiginlega að vera til háborrinnar skammar en ég vona að þið kæru lesendur fyrirgefið mér seinaganginn ;)
Margt hefur gerst síðan ég átti afmæli já iss ég er nú að verða bráðum tvítug. Það helsta sem er í fréttum er að ég og siggi minn vorum að kaupa okkur fallega íbúð í rimahverfinu sem er svo falleg að hún er bara endalaus draumur í dós og er í dag 7 vikur og 5 dagar í afhendingu. Við erum búin að kaupa öll helstu tækin þ.e. uppþvottavél, þurrkara, þvottavél, ryksugu og síðast en ekki síst plastparket á vinnuherbergið (þið takið eftir orðinu..þetta er s.s. Ekki barnaherbergi en það er bara sona upp á gamanið að láta ykkur vita af því..) en svo ég haldi nú áfram með þetta þá er s.s. teppi á þessu vinnuherbergi. En eignin er 105fm2 og þar af 98fm2 íbúð og 7fm2 geymsla, hún er upp á 2.hæð og er endaíbúð sem hefur útsýni yfir borgina og Bláfjöll. Það eru 2 herbergi, stofa, eldhús, forstofa, gangur, eldhús og lítið sætt þvottahús til þess að hann siggi minn gangi nú ekki alltaf í skítugum fötum...og það á kannski bara líka við um mig kæru vinir :)
Þá er það annað sem ég vildi segja ykkur og það er að ég lennti aðeins upp á spítala í síðustu viku og var þar í 6 daga, ég fékk flogakast og reyndar nokkuð mörg og þurftu allir læknar á spítalanum að sjá mig áður en ég fékk einhver lyf, ég fór í svokallað heilasíritun en þar var ég í sviðsljósinu með myndavél fyrir framan mig og með tengi í höfðinu sem síðan voru tengd við tölvu. Þarna átti ég að vera í sólarhring vegna þess að ég átti að fá 2 flog til þess að hægt væri að greina mig...ég var ekki lengi að því og var því aðeins í 4 klukkutíma..Þá kom sú greining að ég væri flogaveik og hefði verið það sem barn en ekki krampaveik eins og ég hafði alltaf verið greind...s.s. ég var þarna niðrá borgarspítala á taugalækningardeild með allskonar mnd sjúklingum sem kölluðu í gríð og erg að enginn vildi gefa þeim kökur og kaffi og léku sér með allt sem þú sáu og þar á meðal herbergisfélagi minn í stuttan tíma en hún er gömul kona sem lét sér við tjaldið sem var á milli okkar og ekki endaði það vel þar sem að þessi líka SVAKALEGA skítalykt kom og var okkur þá ekki alveg sama um greyið gömlu konuna og ákváðum við mamma að láta hjúkkurnar vita sem voru ekkert að flýta sér...
Ég missti s.s. af fyrsta prófinu sem var á fimmtudaginn var þar sem ég kom heim á föstudaginn og eins og þeir sem þekkja mig vita nú þegar þá mætti ég í annað prófið sem var í morgun :) ég ÆTLA mér að útskrifast því að það er nú verið að sauma á mig húfuna og síðan eru mamma og tengdamamma svo mikið búnar að undirbúa í útskriftarveislunni okkar sigga míns sem verður 26.maí.
En svo ég komi nú að öðru þá er ég komin með vinnu í sumar og er það í Hagkaup í Spöng aðeins einni götu frá íbúðinni minni sem er nú frekar mikið þægilegt, að geta rölt í góða veðrinu í vinnuna. Síðan er það Háskóli Íslands í haust í viðskiptafræðina...og síðan seinna Endurskoðandinn en við skulum ekkert vera að tala mikið um það núna....;)
Ég fer í næsta próf á fimmtudaginn og það er þýskan...þetta fallega og rómantíska tungumál :P

Þá held ég að þetta sé bara gott í bili...við heyrumst aftur seinna og vonandi hafið þið gaman að þessu líka langa bloggi.....
Kveðja, Rut verðandiStúdent :D

Ég á afmæli í dag!!!! 19 ára stelpuskjáta! :D

06. desember 2006 klukkan 18:34
Hæhæ kæru vinir, ég veit að þið eruð búin að bíða eftir bloggi og hér er það!! Ég er búin að vera í próflestri á fullu, búin að fara í íslenskupróf sem var slatta erfitt og þurfti að lesa 800bls! síðan er ég líka búin með enskuna...í þessum prófum gekk bara vel held ég! :D Þá er það bara 2 próf eftir í viðbót í næstu viku og er ég byrjuð að læra svakalega dugleg ;)

Ennnn eins og flestir vita kannski...... ÞÁ Á ÉG AFMÆLI Í DAG!!!!! :D Loksins kom þessi blessaði dagur...en viti menn ég er ekkert alltof viss um að ég fari að telja mikið niður fyrir 20 ára afmælið og þar á eftir held að þetta sé bara fínt svona HAHAHA eða kannski er fínt að telja í 20 ára afmælið og verða bara 20 ára eftir það heheheh :D

Annars er bara gott að frétta og elska ég ykkur öll :**

Nýr bíll, James Bond og 1 vika í próf...

26. nóvember 2006 klukkan 06:40
Heil og sæl kæru vinir Brosandi
Ég er hef komist að því að ég er alveg ömurlegur bloggari og eru örugglega mjög margir sammála því, en ástæðan fyrir þessu bloggleysi er sú að ég hef verið að gera vefsíðuverkefni í skólanum og var ég því með bloggsíðu um Sómalíu (ég mun gera link hér til hliðar svo þið getið skoðað undir Sómalía).
Það hefur ekkert mjög margt skéð...nema það að við náðum loksins að selja Toyotuna og keyptum okkur Skoda Fabiu 2000 árgerð alveg svaka flotta! Svalur Síðan átti hann Siggi minn afmæli 1. nóvember og bauð ég honum út að borða á Ítalíu, svakalega kózý og rómantískt. Við erum annars bara búin að vera að stunda skólann og vinna þess á milli, Siggi er algjör vinnualki þessi elska! Hlæjandi Síðan var gamla settið að kaupa sér jeppa úr kassanum alveg dúndurflottan, Suzuki Grand Vitara. Við Siggi og gamla settið fórum svo í bíó áðan á Casino Royale og var hún alveg mjöög góð!
Inga litla vinkona var að skíra prinsessuna sína þann 18.nóvember og var hún skírð Emma Rós, svaka sætt nafn finnst mér. Brosandi
Þá má segja frá því að ég á afmæli eftir 10 daga eða þann 6.desember og verður þá kjellan 19 ára.. Hissa Síðan koma blessuð jólin eftir 28 daga!! og voru meiraðsegja byrjað að spila jólalög í útvarpinu í gær. Hlæjandi
Það er bara 1 kennsluvika eftir og síðan byrja prófin, eftir það er unnið útí eitt þangað til skólinn byrjar aftur...reyndar koma jólin og áramótin þarna inní! Tala af sér

Enn vona að þið hafið það gott og ánægjulegt að fá smá blogg úr pokahorninu mínu...

Kv. Rutla Jólastelpa...

Heilbrigð!

11. október 2006 klukkan 21:55

Hæj, mér líður alveg ótrúlega vel! Og gæti ég bara trúað því að ég sé orðin loksins heilbrigð Hlæjandi En það hefur lengi verið draumur hjá mér..

Það gengur mjög vel í skólanum en það er mikið af skilaverkefnum og heimalærdómi og síðan byrja prófin bráðum Ullandi

Ég var að vinna um síðustu helgi og var það bara mjög skemmtilegt að koma aftur, ég átti að vinna frá 9-6 á laugardeginum en ég vann bara til 3 því þá var ég orðin svo þreytt (ekki allt þrek komið) en ég vann frá 1-5 á sunnudeginum og var ég ekki eins þreytt eftir þann dag þannig að þetta er allt í áttinu Svalur

Annars er æðislegt í húsinu og ég á yndislega fjölskyldu og vini og auðvitað er ég yfir mig ástfangin af honum Sigga mínum sem hefur staðið með mér í gengum ýmsilegt þessi elska KossHlæjandi

Ég hef þetta ekki lengra í bili, hasta luego chicos (sjáumst seinna) og munið að hafa trú á ykkur í hverju sem þið takið ykkur fyrir hendur Glottandi

Lífið líður..

03. október 2006 klukkan 19:38
Sæl, ég er enn á lífi þó ég hafi ekki bloggað í langan tíma. Við erum loksins flutt og búin að koma okkur vel fyrir og hengja upp myndir og allt sem því fylgir, og líður okkur bara mjög vel hérna í grafarvoginum ;)
Ég er að jafna mig eftir einkirnissóttina en ég er ennþá svolítið kraftlítil en það tekur bara sinn tíma. Ég byrjaði nú í skólanum í síðustu viku og gengur bara vel og einhvern veginn náði ég að halda mig við hópinn í náminu. :)

Mér finnst mjög mikið um sambandsslit núna síðustu mánuði og er það aldrei gaman :( en svona bara gerist og þekki ég allavega 5 pör sem eru nýhætt saman eða fyrir nokkrum mánuðum...þá er ég að tala um pör sem hafa verið saman í 2, 3 eða jafnvel 4 ár saman en svona er þetta bara það slökknar eithvað eða annar aðilinn gerir þau mistök að halda framhjá.. Óákveðinn Þannig að ég vil bara gefa öll þeim sem eru hætt í sambandi og eru í ástarsorg eða að komast yfir hana STÓRT KNÚS frá mér! Koss

Síðan varð Inga vinkona mín móðir 27.september síðastliðinn og eignaðist hún litla prinsessu og var hún hvorki meiri né minni en 17merkur og 51cm. Hún er algjört æði og alveg eftirlíking móður sinni, hún hefur heldur ekki langt að sækja yndislegheitin.. ;)

Ég er að hugsa um að hafa þetta ekki lengra í dag heldur fara að læra, síðan fæ ég heimsókn í kvöld frá Helen og Diddu, krúttunum mínum. Og það verður þá kjaftað og blaðrað og MIKIÐ hlegið ;)

Hæhæ :)

13. september 2006 klukkan 19:20

Sælt fólk!


Eins og kannski flestir vita þá er ég komin með einkirnissótt en það er ólæknandi veirusjúkdómur (líkt og berklar). Ég er með svakalegar hjartslátt, miklar höfuðkvalir, svima, ringulreið, ógleði og á það til að líða útaf Fýldur Læknirinn sagði mér að vera bara heima uppí rúmi og má ég ekkert gera því þá fæ ég mikla verki Óákveðinn þannig að ég er bara heima hjá mér og læt stjana við mig, síðan er ég líka í heimaskóla og læri bara í gegnum mail til kennaranna sem eru mjög skilningríkir við mig SaklausBrosandi

Íbúðin gengur vel, búið að mála allt og flísaleggja og búið að setja upp meirihlutann af eldhúsinnréttingunni...þannig að allt gengur vel, ég mun bara flytja eins og prinsessa s.s færð milli herbergja Brosandi


Annað er lítið í fréttum nema Heba úr Hagkaup var að eignast lítinn prins 16merkur og 54cm stór strákur! Litli frændi Sigga var skírður í lok ágúst og heitir Bjarni Þór hann er 3mánaða og er orðinn 65cm og 8,5kíló Hissa

Ég verð líka bráðum stjúpmamma eða þannig, hún Inga litla skvísa vinkona mín á von á sér og verður hún kannski sett af stað á föstudaginn kemur en hún er komin næstum 38 vikur Hlæjandi

Takk takk RutlaKoss

Fréttir :)

31. ágúst 2006 klukkan 15:21
Hæjj, ég ætla að byrja á því að segja frá hvað Búlgaríu ferðin var skemmtileg og æðisleg í alla staði!!!!! Við skemmtum okkur konunglega og keyptum mjög marg fallegt meðal annars létum við mála mynd af okkur og ramma hana inn og hún er æði :D
Nýja íbúðin er næstum fokheld þar sem mamma ákvað að skipta um eldhúsinnréttingu þar sem hin var orðin frekar illa farin, það er búið að hvítta loftin. Flísalagt verður í dag og síðan koma hurðar og síðan kemur eldhúsinnréttingin. Þá er bara eftir að mála og skipta um glugga. Því næst verður flutt og það fyndna er að við eigum að skila af okkur 1.óktóber :D Þannig vonandi að þetta náist.
Þá er komið að því leiðinlega....ég var greind með æxli í hálsinum og fer ég í dag að láta stinga á það til að athuga hvort að það er góðkynja eða illkynja ;) Hvort sem það verður þá verður það skorið burt en ekki kemur úr sýninu fyrr en eftir viku.

Takk takk, Rut Koss

Búlgaría á morgun!!!!! :o)

07. ágúst 2006 klukkan 20:23

Hæhæ sæta fólkið mitt! já það er að styttast í þetta! Búlgaría á morgun here we come!!! Brosandi Aðeins 1 dagur, að hugsa sér! Ullandi Við erum búin að pakka næstum því öll nema að ég fattaði í gær að ég gleymdi sandölunum mínum í vinnunni þannig að ég verð að sækja þá á morgun áður en ég fer í sjúkraþjálfun Koss Annars vildi ég bara segja bless áður en ég fer í flugvélina eftir 1 dag váts! eftir akkurat 24 tíma þá verð ég komin í fríhöfnina uppá velli !! Svalur Annars bæó sæta fólk :****

Flutningar og skiptibókamarkaður! :)

29. júní 2006 klukkan 05:43

Hæhæ sæta fólkið mitt, ég ákvað að skrifa eitt stykki blogg um það sem er að fara að að ské og hefur skéð undanfarið!...

Ég byrja kannski á því að segja frá því að ég er búin að fara á skiptibókamarkað I KNOW VÍRDÓ!! en það var samt bara gaman, núna á ég bara eftir að kaupa nokkrar bækur fyrir haustið. Glottandi
Ég þarf líka að segja frá því að ég er að fara að klára að borga ferðina á næstu dögum...! Brosandi
Það allra stærsta sem þarf að segja frá er að mammz og pabbz eru búin að selja húsið og kaupa nýtt í foldahverfinu í Grafarvoginum!!!!!!!! HissaHlæjandi

Annarss er ég bara búin að vera að vinna og vinna og undirbúa útsölu og fara á vinnufundi og sollis. Útsalan byrjaði einmitt í dag en ég var í fríi í dag þannig að það kemur í ljós á morgun hvort að það hafi selst mikið í gær.. en annars var það ekki meira heyrumst þangað til eitthvað nýtt skéður luv you all :***

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...